Kristján Guðmundsson
Kristján Guðmundsson
F. í Reykjavík 4. okt. 1945
Varaborgarfulltrúi 1998-2010 (D)
Foreldrar:
Aðalheiður Klemensdóttir, húsmóðir f. í Reykjavík 21.10.1910, d. 26.10.1995 og Guðmundur Kristján Kristjánsson, vélstjóri, f. í Reykjavík 19.7.1904, d. 27.1.1958.
Menntun:
Sveinspróf í húsasmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík 1968. og lauk námi frá Meistaraskólanum í Reykjavík 1977. Byggingarleyfi á landvísu sem gefur réttindi til að starfa sem byggingastjóri.
Starfsferill:
Starfað við húsasmíðar við hin ýmsu byggingarverk til 1977. Rak eigið byggingafyrirtæki ásamt fjórum öðrum húsasmiðum til ársins1982. Starfaði hjá B.Ú.R. síðar Granda h/f í 13 ár, sem smiður og síðar sem umsjónarmaður fasteigna fyrirtækisins 1983 til 1995. Varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn kjörtímabilið 1991-1994. Sjálfstæður verktaki við nýsmíðar og viðhaldsverkefni 1995-2005. Verkeftirlitsmaður hjá Orkuveitu Reykjavíkur frá 2005.
Reykjavíkurborg:
Kristján Guðmundsson átti sæti sem varaborgarfulltrúi 1998-2010 fyrir D-lista, Sjálfstæðisflokk. Auk þess átti hann m.a. sæti í eftirtöldum nefndum og ráðum á vegum Reykjavíkurborgar:
1992-1994-Húsnæðisnefnd.
1998-2002-Húsnæðisnefnd, samgöngunefnd frá 2000 og stjórn Strætisvagna Reykjavíkur.
2002-2006-Skipulags- og byggingarnefnd, stjórn Fasteignastofu frá 2004 og stjórn Sorpeyðingar á höfuðborgarsvæðinu bs., formaður og hverfisráði Hlíða.
2006-2010-Framkvæmdaráði, skipulagsráði 2008, stjórn eignasjóðs 2007-2008, heilbrigðisnefnd, formaður frá 2008 og hverfisráði Hlíða, formaður frá 2006-2007.
Félags- og trúnaðarstörf:
Sat í stjórn Hverfafélags sjálfstæðismanna Vestur Miðbæjar árin 19741984.
Sat í stjórn Málfundarfélagsins Óðins 1984 -1993, þar af formaður frá 1987-1993. Sat í stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðismanna í Reykjavík 1987-1993.
Í flokksráði Sjálfstæðisflokksins frá 1984.
Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins frá 1988.
Formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins frá 1988. Varamaður í Íbúðalánasjóði frá 1991.
Ritstörf og fræðistörf: Skrifað Pistla og greinar í dagblöð.
Maki:
Elsa Baldursdóttir, bankastarfsmaður, f. í Reykjavík 27.10.1949. Foreldrar maka: Elísabet Guðjónsdóttir, húsmóðir, f. í Reykjavík 28.1.1922 og Baldur Kristjánsson, píanóleikari, f. í Reykjavík 21.10.1922.
Börn:
Guðrún Lísa, f. 13.3.1969, Sólrún, f. 3.6.1973, Kristján Heiðar, f. 8.3.1979.